Langt norður í landi á stað sem heitir Dimmuborgir og er í Mývatnssveit búa dálítið magnaðir karlar. Þú hefur kannski
komið þangað? En þú sást þá ekki? Það er bara vegna þess að þú hefur ekki horft nægilega vel í kringum
þig. Þessir karlar eru nefnilega jólasveinarnir okkar. Ef þú heimsækir Dimmuborgir, svona rétt fyrir jólin, er eiginlega alveg öruggt að
þú rekst á jólasveinana.
