Jólasveinarnir í Dimmuborgum

Jólasveinarnir í Dimmuborgum

Askasleikir

Askasleikir

Askasleikir er mikill sælkeri. Hann er líka svolítið taugaveiklaður og alltaf hræddur um að einhver slasi sig. Allt um jólasveinanna »
Bjúgnakrækir

Bjúgnakrækir

Bjúgnakrækir er mjög liðugur og góður að klifra. Honum finnst bjúgu mjög góð og það þykir ekki einleikið hversu miklu hann torgar. Allt um jólasveinanna »
Gáttaþefur

Gáttaþefur

Gáttaþefur er með mjög stórt nefn og hann er líka mjög næmur. Gáttaþefur finnur lykt af laufabrauði langt uppá fjöll og ratar á góðgætið með augun lokuð. Allt um jólasveinanna »
Giljagaur

Giljagaur

Giljagaur er stærstur bræðranna. Hann er frekar feiminn við fullorðna en finnst gaman að syngja með börnum. Allt um jólasveinanna »
Gluggagægir

Gluggagægir

Gluggagægir er mjög forvitinn! Hann er græjukallinn í fjölskyldunni og er nokkuð áhugasamur um vélknúin farartæki. Allt um jólasveinanna »
Hurðaskellir

Hurðaskellir

Hurðaskellir er voðalega stríðinn. Honum finnst gaman að hafa hátt og hann syngur líka mjög hátt og snjallt. Allt um jólasveinanna »
Kertasníkir

Kertasníkir

Kertasníkir er ósköp rómantísk sál og sérstaklega hrifinn af öllu sem lýsir og speglar. Hann er líka sérlega hrifinn af hreinum og fallegum fötum. Allt um jólasveinanna »
Kjötkrókur

Kjötkrókur

Kjötkrókur er kátur kraftakarl sem hefur uppáhald á hangikjöti. Honum finnst gaman að vera í sviðsljósinu og segja sögur af sjálfum sér. Allt um jólasveinanna »
Pottaskefill

Pottaskefill

Pottaskefill er matargat! Hann sleikir potta þar til enginn sér að þeir eru notaðir. Allt um jólasveinanna »
Skyrgámur

Skyrgámur

Skyrgámur er mjög vingjarlegur karl sem elskar að borða skyr og láta fara vel um sig. Hann hreyfir sig hægt og strýkur oft um bumbuna á saér sem er full af skyri. Skyrgámur sofnar oft standandi og á öllum tímum sólahringsins. Hann er ljúfur karl og sérstaklega góður við börn Allt um jólasveinanna »
Stekkjastaur

Stekkjastaur

Stekkjastaur er stirður og skakkur með staurfætur. Hann er hrekklaus og auðtrúa hrakfallabálkur en ákaflega ábyrgur. Enda elstur. Allt um jólasveinanna »
Stúfur

Stúfur

Stúfur er langminnstur. Honum finnst gaman að skemmta fólki og dreymir um að verða frægur. Hann er alls ekki gefinn fyrir að fara í bað. Allt um jólasveinanna »
Þvörusleikir

Þvörusleikir

Þvörusleikir er sísvangur. Honum finnst best að sleikja óhreinar sleifar og er alveg sama í hvaða mat þær hafa verið notaðar. Allt um jólasveinanna »

Fréttir

Advent Calendar 2011

The Yule Lads receive guests at Hallarflöt in Dimmuborgir from November 26th to December 23rd, Friday, Saturday and Sunday from 1:00 - 3:00 pm.
Magical Myvatn, Yuletide wonderland.


Read more

Events

No upcoming events

Advertisements

Christmas Cities Network

Calendar

« May 2012 »
SMTWTFS
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031 

Division

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf